Góðgæti á æfingu hjá Southampton?

Mark Clattenburg sýnri Victor Wanyama, leikmanni Southampton rauða spjaldið á …
Mark Clattenburg sýnri Victor Wanyama, leikmanni Southampton rauða spjaldið á laugardaginn. AFP

Leikmenn Southampton eiga von á góðu ef Victor Wanyama leikmaður liðsins bregst við áskorun liðsfélaga síns, Maya Yoshida, með jákvæðum hætti. 

Wanyama fékk að líta sitt þriðja rauða spjald á yfirstandandi leiktíð fyrir tæklingu á Dimitri Payet, leikmann West Ham, í leik liðanna um helgina. 

„Victor [Wanyama] þarf að endurgjalda okkur þetta núna, kannski með því að koma með nokkra Krispy Kreme kleinuhringi fyrir leikmennina," sagði Maya Yoshida í léttum tón við enska fjölmiðla í dag.  


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert