Klopp stýrir Liverpool í kvöld

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool. AFP

Jürgen Klopp mun stýra liði Liverpool í kvöld þegar það mætir West Ham í endurteknum leik í 4. umferð ensku bikarkeppninnar í Lundúnum í kvöld.

Klopp var fjarri góðu gamni á laugardaginn þegar Liverpool gerði 2:2 jafntefli við Sunderland þar sem hann fékk botnlangakast að Þjóðverjinn hefur jafnað sig og verður til staðar á Bolyen Ground í kvöld.

Sigurliðið mætir Blackburn í fimmtu umferðinni Liverpool og West Ham gerðu markalaust jafntefli á Anfield.

Philippe Coutinho, Divock Origi og Daniel Sturridge gætu allir komið við sögu í liði Liverpool en þeir eru tilbúnir í slaginn eftir að hafa verið frá vegna meiðsla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert