Rodgers hafnaði Swansea

Brendan Rodgers, fyrrum knattspyrnustjóri Liverpool.
Brendan Rodgers, fyrrum knattspyrnustjóri Liverpool. AFP

Brendan Rodgers fyrrverandi knattspyrnustjóri Swansea og Liverpool segist hafa hafnað fimm tilboðum frá því honum var sagt upp störfum hjá Liverpool í október.

Meðal þeirra liða sem sóttust eftir kröftum hans var Swansea en þegar Gary Monk var látinn poka sinn í desember fékk Rodgers tilboð um að taka aftur við velska liðinu en hann hafnaði því.

Rodgers segist vilja bíða fram á sumar að hella sér aftur út í þjálfun en hann stýrði Swansea frá 2010 til 2012 og fór þaðan til Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert