Wanyama í fimm leikja bann

Victor Wanyama gengur af leikvelli eftir rauða spjaldið sem hann …
Victor Wanyama gengur af leikvelli eftir rauða spjaldið sem hann fékk fyrir ljótt brot í leiknum gegn West Ham. AFP

Victor Wanyama miðjumaðurinn öflugi í liði Southampton hefur verið úrskuraðaður í fimm leikja bann af aganefnd enska knattspyrnusambandsins.

Wanyama fékk að líta rauða spjaldið í upphafi síðari hálfleiks í viðureign Southampton og West Ham á laugardaginn. Þetta var þriðja rauða spjaldið sem leikmaðurinn fær á leiktíðinni og hann þarf nú að taka út fimm leikja bann fyrir vikið.

Þetta þýðir að hann mun ekki spila með Southampton aftur fyrr en 19. mars en þá mætir liðið Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert