Liverpool þarf að greiða fyrir Ings

Danny Ings, leikmaður Liverpool.
Danny Ings, leikmaður Liverpool. AFP

Liverpool var í dag dæmt til þess að greiða 6,5 milljónir punda vegna félagaskipta Danny Ings frá Burnley til Liverpool.  

Danny Ings kom til Liverpool síðasta sumar á frjálsri sölu frá Burnley þar sem samningur hanv hjá Burnley rann út eftir siðustu leiktið. Burnley átti hins vegar rétt á uppeldisbætum fyrir Danny Ings.

Liverpool var dæmt til þess að greiða Burnley 6,5 milljónir punda fyrir Danny Ings. Þá þarf Liverpool auk þess að greiða 1,5 milljónir punda og Burnley mun svo fá 20% af söluverði Danny Ings verði hann seldur frá Liverpool.

Danny Ings hefur ekkert leikið með Liverpool síðan hann sleit liðband í hné í október á siðasta ári, en búist er við að hann nái sér af þeim meiðslum á næstunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert