Leikmenn Leicester ætla að hittast

Marc Albrighton fagnar marki sínu fyrir Leicester City með samherjum …
Marc Albrighton fagnar marki sínu fyrir Leicester City með samherjum sínum. AFP

Kvöldið getur farið í tvær áttir hjá leikmönnum Leicester City. Þeir gætu enn þurft að næla sér sjálfir í þrjú stig til þess að tryggja enska meistaratitilinn í knattspyrnu karla. Hinn kosturinn er sá að leikmenn Chelsea geri þeim greiða og flýti hátíðarhöldum félagsins. 

Marc Albrighton, miðvallarleikmaður Leicester City segir að leikmenn liðsins muni hittast í kvöld og horfa á Monday Night Football á SkySports saman og sjá í hvora áttina kvöldið leiðir þá.

„Við verðum að horfa á þáttinn að þessu sinni. Ég held að við getum ekki sleppt því. Ég missti af þættinum í síðustu viku, en nú þegar við eigum möguleika á að verða enskir meistarar þá munum við safnast saman og fylgjast með. Við munum eyða kvöldinu saman og svo er bara spurning hvernig hlutirnir þróast,“ sagði Albrighton í samtali við SkySports.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert