Henry skilur ekki drollið í Vardy

Thierry Henry er goðsögn hjá Arsenal.
Thierry Henry er goðsögn hjá Arsenal.

Thierry Henry er furðu lostinn yfir því að Jamie Vardy, leikmaður Leicester City, skuli hika við að taka ákvörðun um hvort hann gangi í raðir Arsenal eður ei.

Leicester varð að samþykkja 20 milljón punda tilboð Arsenal í Jamie Vardy en bauð honum nýjan samning í von um að hann yrði um kyrrt hjá Englandsmeisturunum. Vardy þarf því að ákveða hvort hann samþykki samningstilboð Arsenal eða Leicester City og vill leikmaðurinn bíða þar til EM í Frakklandi er liðið.

„Hann er 29 ára gamall og Arsenal er á höttunum eftir honum, og hann ætlar að íhuga málin?“ spurði Henry, einn besti leikmaður Arsenal frá upphafi, við BBC. Hann bætti við:

„Sko, ef ég væri í Leicester og Arsenal vildi fá mig, þá væri ég farinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert