Wanyama á leið til Tottenham

Victor Wanyama í leik með Southampton.
Victor Wanyama í leik með Southampton. AFP

Victor Wanyama, leikmaður Southampton á Englandi, er á leið í læknisskoðun hjá Tottenham Hotspur en það er Sky Sports sem greinir frá.

Nígeríski miðjumaðurinn hefur verið magnaður með liði Southampton frá árinu 2013 við góðan orðstír.

Southampton og Tottenham hafa komist að samkomulagi um kaupverð á kappanum en hann fer til Tottenham fyrir 13,5 milljónir punda.

Hann fer í læknisskoðun hjá Tottenham í dag áður en hann skrifar undir langtímasamning við félagið.

Wanyama lék 92 leiki fyrir Southampton og skoraði 4 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert