Negredo í Middlesbrough

Álvaro Negredo skrifar undir samninginn í dag.
Álvaro Negredo skrifar undir samninginn í dag. Ljósmynd/http://www.mfc.co.uk/

Spænski framherjinn Álvaro Negredo er á leið til nýliða Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni á árs löngum lánssamning en hann kemur til liðsins frá Valencia á Spáni.

Negredo er þrítugur og skoraði fimm mörk fyrir Valencia í efstu deild spænska fótboltans á síðustu leiktíð og eitt mark í Meistaradeild Evrópu en var hins vegar í aukahlutverki og vermdi tréverkið stóran hluta leiktíðar.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Negredo leikur á Englandi. Manchester City keypti hann frá Sevilla sumarið 2013 á 16,4 milljónir punda og skoraði kappinn 23 mörk í 48 leikjum á sínum tíma þar, þar á meðal eina þrennu í Meistaradeildinni gegn CSKA Moskvu árið 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert