Ibrahimovic fær númerið hans Martial

Ibrahimovic og Mourinho þegar Chelsea mætti PSG árið 2015
Ibrahimovic og Mourinho þegar Chelsea mætti PSG árið 2015 AFP

Manchester United hefur tilkynnt hvað treyjunúmer leikmenn félagsins munu hafa á næsta tímabili. Zlatan Ibrahimovic verður númer 9 en Anthony Martial bar það númer á síðasta tímabili. 

Martial fær í staðinn hina sögufrægu ellefu sem var stíluð á Ryan Giggs meðan hann spilaði fyrir félagið. Henrikh Mkhitaryan fær 22 og Eric Bailly verður númer 3. 

Nánari útlistun á númerum má sjá hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert