Rooney klobbaður í tvígang - myndskeið

Wayne Rooneyí skallatennis með samherjum sínum hjá Manchester United.
Wayne Rooneyí skallatennis með samherjum sínum hjá Manchester United. AFP

Manchester United er í óða önn að undirbúa sig fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu sem hefst eftir um það bil þrjár vikur. Liðið er statt í Shanghai þessa stundina þar sem liðið mun leika við nágranna sína, Manchester City og Borussia Dortmund.

Wayne Rooney, fyrirliði Manchester United, átti ekki sjö sekúndurnar sælar á æfingu liðsins í Shanghai þar sem boltinn var settur á milli fóta hans tvívegis á þeim tíma í reitabolta eins og sjá má í myndskeiðinu hér að neðan.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert