Lék sér að leikmönnum Celtic – myndskeið

Riyad Mahrez.
Riyad Mahrez. BEN STANSALL

Riyad Mahrez, leikmaður Leicester City á Englandi, skoraði eina mark liðsins í 1:1 jafntefli gegn Glasgow Celtic í æfingamóti sem fer fram í Bandaríkjunum um þessar mundir.

Mahrez var lykilmaður í liði Leicester á síðustu leiktíð er það vann Englandsmeistaratitilinn en svo virðist sem hann sé á leið til Arsenal.

Hann skoraði magnað mark gegn Celtic í dag en það gæti hafa verið hans síðasta fyrir félagið.

Hægt er að sjá það hér fyrir neðan. Leicester vann eftir vítaspyrnukeppni.

<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" mozallowfullscreen="" scrolling="no" src="https://streamable.com/e/yi3z" style="width: 100%; height: 100%; position: absolute;" webkitallowfullscreen=""></iframe>
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert