Lewandowski fyrstur í 50 mörk

Robert Lewandowski hefur skorað 50 mörk fyrir Bayern Munchen í …
Robert Lewandowski hefur skorað 50 mörk fyrir Bayern Munchen í þýsku úrvalsdeildinni. AFP

Pólski framherjinn Robert Lewandowski, náði merkum áfanga með Bayern München í 6:0 bursti gegn Werder Bremen þegar liðin mættust í 1. deildinni í þýsku knattspyrnunni á föstudaginn.

Lewandowski skoraði þrennu og varð þar með sá leikmaður Bayern sem nær 50 mörkum í 1. deild í fæstum leikjum. Pólski landsliðsmaðurinn hefur nú skorað 50 mörk í 64 deildarleikjum með þýsku meisturunum og geri aðrir betur.

Hann skaut nokkrum þekktum köppum aftur fyrir sig á þessum lista, sem allir þurftu fleiri leiki til að ná 50 mörkum. Roy Makaay skoraði 50 mörk í 67 leikjum, Mario Gomez þurfti 71 leik og sjálfur Gerd Müller lék 83 leiki áður en mark nr. 50 kom í sarpinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert