Balotelli svarar Carragher

Steven Gerrard og Jamie Carragher á góðri stundu.
Steven Gerrard og Jamie Carragher á góðri stundu. AFP

Mario Balotelli og hans fylgdarlið vandar ekki Liverpool-mönnum kveðjurnar og skaut ítalski framherjinn fast á eina af goðsögnum félagsins, Jamie Carragher, á Twitter í dag.

Mino Raiola, lét Jürgen Klopp heyra það í ítölskum fjölmiðlum í dag og kallaði hann drulluhal. Næst var röðin komin að Balotelli og Carragher en allt gerðist þetta eftir að Balotelli gekk í raðir franska 1. deildar liðsins Nice undir lok þessa félagsskiptaglugga.

„Jamie Carragher, slæmur leikmaður, dásamlegur „hater“,  hverjum er ekki sama,“ sagði Balotelli á Twitter-aðgangi sínum í kvöld.

Carragher gerði grín að Balotelli og sagði Nice vera að taka áhættu þrátt fyrir að liðið fengi hann til sín á frjálsri sölu. Balotelli líkaði það augljóslega ekki og skaut fast til baka.

Mario Balotelli ánægður í Nice-búningnum.
Mario Balotelli ánægður í Nice-búningnum. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert