Drinkwater aftur til United?

Danny Drinkwater.
Danny Drinkwater. AFP

Ensku blöðin greina frá því í dag að José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, ætli að gera atlögu að því að fá Danny Drinkwater, leikmann Englandsmeistara Leicester, til liðs við sig þegar opnað verður fyrir félagaskipti í janúar.

Mourinho er sagður reiðubúinn að greiða 30 milljónir punda fyrir Drinkwater, sem er 26 ára gamall og er alinn upp hjá Manchester United. Hann lék með unglingaliðum félagsins en engan leik með aðalliðinu þann tíma sem hann var hjá liðinu.

Drinkwater gekk í raðir Leicester árið 2012 og átti frábært tímabil með liðinu í fyrra þegar það landaði óvænt Englandsmeistaratitlinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert