„Hann vill alls ekki láta snerta sig“

Britos (3) eltir Zlatan Ibrahimvoc í leiknum á sunnudag.
Britos (3) eltir Zlatan Ibrahimvoc í leiknum á sunnudag. AFP

Úrúgvæski varnarmaðurinn Miguel Britos, sem leikur með Watford, segir að Zlatan Ibrahimovic verði auðveldlega pirraður en Watford sigraði Ibrahimovic og félaga hans í Manchester United, 3:1, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á sunnudag.

„Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég mæti honum en ég gerði það þegar við lékum báðir á Ítalíu. Okkur gekk vel að halda honum og Rooney niðri,“ sagði Britos.

Watord sá til þess að United tapaði sínum þriðja leik í röð í öllum keppnum. Britos þykir Ibrahimovic góður leikmaður þó hann geti verið uppstökkur.

„Hann er svolítið hrokafullur og það þarf lítið til að hann verði pirraður. Hann vill alls ekki láta snerta sig. Hins vegar er hann frábær leikmaður,“ bætti Britos við en hann gekk til liðs við Watford frá ítalska liðinu Napoli fyrir rúmu ári síðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert