„Giggs væri hörmung“

Ryan Giggs.
Ryan Giggs. AFP

Orðómur er í gangi að Ryan Giggs gæti orðið næsti knattspyrnustjóri Swansea eins og fram kom á mbl.is í gærkvöld en enskir fjölmiðlar greindu frá því að Giggs sé í sigtinu hjá forráðamönnum velska liðsins fari svo að Francesco Guidol­in verði látinn tapa poka sinn.

Ekki hafa þessar fréttir farið vel í suma stuðningsmenn Swansea og einn þeirra skrifaði á twitter; Giggs yrði hörmung fyrir Swansea. Steve Bruce til loka leiktíðar væri góð lausn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert