Tottenham heldur áfram að binda menn

Kyle Walker í leik Chelsea og Tottenham.
Kyle Walker í leik Chelsea og Tottenham. AFP

Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham heldur áfram að semja við lykilmenn sína til langs tíma, en í morgun bættir enski bakvörðurinn Kyle Walker í hópinn.

Walker, sem er 26 ára gamall, skrifaði undir framlengingu á samningi sínum sem gildir til ársins 2021. Í gær samdi Danny Rose sömuleiðis til sex ára og þá hafði Tottenham einnig bundið þá Eric Dier, Christian Eriksen og Dele Alli niður til langs tíma.

Tottenham er í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar, með ellefu stig eftir fimm leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert