Verstu 45 mínúturnar á ferlinum

Zlatan þakkar fyrir stuðninginn á Old Trafford í kvöld.
Zlatan þakkar fyrir stuðninginn á Old Trafford í kvöld. AFP

Sparkspekingurinn Jamie Carragher gagnrýndi frammistöðu Zlatan Ibrahimovic í leiknum gegn Manchester City í enska deildabikarnum í kvöld.

„Ég held að Zlatan Ibrahimovic hafi líklega átt sínar verstu 45 mínútur á ferlinum,“ sagði Carragher, en Zlatan voru mjög mislagðir fætur í fyrri hálfleiknum á Old Trafford í kvöld og gerði hann sig sekan um hver mistökin á fætur öðrum.

Zlatan skilaði betri frammistöðu í seinni hálfleik og lagði upp sigurmarkið sem Juan Mata skoraði.

Þetta var sjötti leikurinn í röð sem Zlatan tekst ekki að skora og hefur hann nú spilað í 588 mínútur án þess að finna netmöskvana.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert