„Við vorum mun betra liðið“

Mourinho fylgist með leiknum í dag.
Mourinho fylgist með leiknum í dag. AFP

José Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, var ákaflega fámáll eftir 1:1 jafnteflið gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Leighton Baines jafnaði metin með marki úr vítaspyrnu á 89. mínútu. United hefur tapað sjö stigum með því að fá á sig mörk á síðustu tíu mínútum í leikjum í vetur en vítaspyrnan í dag var dæmd eftir að Marouane Fellaini braut af sér innan vítateigs.

Fellaini hafði komið inn á sem varamaður tveimur mínútum áður en Mourinho vildi ekkert tjá sig um hvort dómurinn hefði verið réttur:

„Ég hef ekkert um það að segja,“ var það eina sem Mourinho sagði.

„Við vorum mun betra liðið á vellinum og úrslitin endurspegla ekki þann mun sem var á liðunum,“ bætti Mourinho við en hann sagði liðið ekki geta gert eitthvað ákveðið til að snúa jafnteflunum yfir í sigurleiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert