Bolasie ekki meira með Everton?

Yannick Bolasie
Yannick Bolasie AFP

Horfur eru á að Yannick Bolasie, kantmaður enska knattspyrnuliðsins Everton, leiki ekki meira með liðinu á þessu keppnistímabili en hann þarf að fara í uppskurð á hné.

Þetta var staðfest í morgun þegar í ljós kom að krossband í hnéu hafði skaddast í leik Everton gegn Manchester United á sunnudaginn.

Bolasie er 27 ára gamall Kongóbúi sem var keyptur fyrir 25 milljónir punda af Crystal Palace í ágúst og hann hefur spilað alla leliki Everton á tímabiliu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert