Man Utd framlengir við Valencia

Antonio Valencia verður áfram á Old Trafford.
Antonio Valencia verður áfram á Old Trafford. AFP

Manchester United hefur nýtt sér ákvæði í samningi Antonio Valencia og framlengt hann til loka tímabilsins 2018. Núgildandi samningur hans átti að renna út í vor.

Hinn 31 árs gamli Valencia kom til United frá Wigan fyrir átta árum, lék fyrst og fremst sem vængmaður en hefur verið að láta til sín taka sem bakvörður á síðari árum.

Valencia hefur byrjað 23 leiki með United á tímabilinu og hafa aðeins þeir Paul Pogba og Zlatan Ibrahimovic af útileikmönnum liðsins byrjað fleiri.

United nýtti sér svipað ákvæði í samningi Marouanne Fellaini á dögunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert