Í bann fyrir slagsmál við boltasæki

Úr leik Leyton Orient.
Úr leik Leyton Orient. BEN STANSALL

Fyrirliði enska D-deildarfélagsins Leyton Orient, Liam Kelly, hefur verið dæmdur í sex leikja bann eftir áflog við boltasæki í 3:2 sigrinum á Plymouth á þriðjudag. 

Kelly var á gulu spjaldi er atvikið átti sér stað en dómari leiksins sá það ekki og kláraði leikmaðurinn því leikinn. 

Enska knattspyrnusambandið kærði fyrirliðann eftir atvikið og dæmdi hann að lokum í sex leikja bann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert