Clattenburg dæmir fleiri leiki

Mark Clattenburg.
Mark Clattenburg. AFP

Enski knattspyrnudómarinn Mark Clattenburg sem í síðustu viku var ráðinn nýr yfirmaður dómaramála í Sádi-Arabíu hefur ekki alveg sagt skilið við ensku úrvalsdeildina.

Clattenburg, sem af mörgum er talinn besti dómari heims, reiknaði ekki með að dæma fleiri leiki í ensku úrvalsdeildinni en nú er ljóst að hann mun dæma fleiri leiki og hefur verið settur á viðureign WBA og Bournemouth sem fram fer á laugardaginn og áætlað er að hann dæmi þrjá aðra leiki til viðbótar áður en hann heldur til Sádi-Arabíu.

 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert