Lallana búinn að skrifa undir

Adam Lallana og Jürgen Klopp.
Adam Lallana og Jürgen Klopp. AFP

Liverpool tilkynnti það nú fyrir stundu að félagið hafi framlengt samning sinn við enska landsliðsmanninn Adam Lallana.

Lallana kom til Liverpool frá Southampton í júní 2014 og hefur reynst liðinu ákfalega vel. Hann hefur skorað 20 mörk í 117 leikjum og hefur verið einn besti maður liðsins á þessu tímabili. Lallana framengdi samning sinn við félagið um þrjú ár.

„Ég er mjög stoltur og er fullur auðmýktar fyrir þá trú sem félagið hefur á mer og sérstaklega knattspyrnustjórinn,“ segir Lallana í viðtali á vef Liverpool.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert