Ajax og Anderlecht fóru áfram

Nick Viergever fagnar sigurmarkinu sínu fyrir Ajax í kvöld.
Nick Viergever fagnar sigurmarkinu sínu fyrir Ajax í kvöld. AFP

Ajax og Anderlecht voru meðal þeirra liða sem í kvöld tryggðu sér farseðilinn í 16 liða úrslit Evrópudeildarinnar en sex leikjum af 13 er lokið.

Ajax hafði betur gegn pólska liðinu Legia Varsjá, 1:0, og vann einvígið samanlagt, 1:0. Nick Viergever skoraði sigurmarkið á 49. mínútu leiksins.

Anderlecht tapaði fyrir St. Peterburg, 3:1, en komst áfram með útivallarmarkinu sem það skoraði í kvöld en liðin skildu jöfn samanlagt, 3:3. Isaac Kiese Thelin var hetja belgíska liðsins en hann minnkaði muninn á lokamínútu leiksins.

Úrslitin í leikjunum:

Osmanlispo - Olympiakos 0:3 (0:3)
APOEL Nicosia - Bilbao 2:0 (3:2)
Ajax - Legía Varsjá 1:0 (1:0)
Besiktas - Hapoel Beer Sheva 2:1 (5:2)
Roma - Villareal 0:1 (4:1)
St. Petersburg - Anderlecht 3:1 (3:3)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert