Costa reyndi allt til að fara frá Chelsea

Diego Costa.
Diego Costa. AFP

Diego Costa, framherji Chelsea, hefur viðurkennt að hann reyndi allt sem hann gat til þess að yfirgefa herbúðir félagsins síðasta sumar.

Hinn 28 ára gamli framherji varð ósáttur á síðasta tímabili eftir að hafa farið á kostum á sínu fyrsta á Englandi. Hann kom frá Atlético Madrid sumarið 2014 og vildi snúa aftur þangað í fyrra. Hann segir þó að nú vilji hann ekki fara þrátt fyrir orðróm þess efnis.

Antonio Conte tók við stjórn Chelsea í sumar og Costa segir að samband þeirra hafi ekki byrjað vel, þar sem Costa vildi fara. Hann þurfti hins vegar að gefa eftir og hefur farið á kostum á tímabilinu og skorað 17 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert