Mourinho horfir til leikmanns Barcelona

José Mourinho.
José Mourinho. AFP

Manchester United hefur í hyggju að gera tilboð í vinstri bakvörðinn Jordi Alba, leikmann spænska meistaraliðsins Barcelona, í sumar.

Fram kemur í enska blaðinu Manchester Evening News að spænski landsliðsmaðurinn sé reiðubúinn að söðla um og ganga í raðir United en hann ku vera mikill aðdáandi José Mourinho, stjóra Manchester-liðsins.

Alba, sem er 28 ára gamall, er metinn á um 25 milljónir punda en hann á þrjú ár eftir af samningi sínum við Barcelona.

Frá því að Luis Enrique, þjálfari Barcelona, breytti í leikaðferðina 3-4-3 hjá sínu liði hefur Alba mátt sætta sig við að verma varamannabekkinn og það hefur ekki farið vel í bakvörðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert