Óttast að Jones spili ekki meira

Phil Jones.
Phil Jones. AFP

Manchester United óttast að varnarmaðurinn Phil Jones spili ekki með á þessu keppnistímabili.

Jones, sem er mikill hrakfallabálkur, meiddist á æfingu með enska landsliðinu í gær og var í kjölfarið sendur til til síns félags þar sem verður til meðferðar.

Talið er að Jones hafði tábrotnað eftir viðskipti við liðsfélaga sinn úr Manchester United, Chris Smalling sem traðkaði óvart ofan á tá Jones.

Jones kemur örugglega til með að missa af níu leikjum Manchester United í aprílmánuði en hann hefur misst talsvert af leikjum sinna manna vegna meiðsla á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert