Defoe líklega í byrjunarliðinu

Jermain Defoe.
Jermain Defoe. AFP

Fastlega er búist við því að Jermain Defoe verði í byrjunarliði enska landsliðsins í fyrsta sinn í fjögur ár þegar Englendingar taka á móti Litháum í undakeppni HM á Wembley í dag.

Defoe, sem er 34 ára gamall og leikur með Sunderland, lék síðast með Englendingum gegn Síle í nóvember 2013 og í mars það sama ár var hann síðast í byrjunarliðinu í leik gegn San Marínó.

Líklegt byrjunarlið Englendinga: Hart, Walker, Stones, Keane, Bertrand, Dier, Oxlade-Chamberlain, Lallana, Alli, Sterling, Defoe.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert