Lingard í viðræðum um nýjan samning

Jesse Lingard.
Jesse Lingard. AFP

Jesse Lingard, leikmaður enska knattspyrnufélagsins Manchester United, er í samningaviðræðum við félagið, en hann vill ólmur vera áfram í herbúðum United. 

Hinn 24 ára gamli Lingard hefur spilað 15 leiki fyrir félagið á leiktíðinni og skoraði í þeim tvö mörk. Samningaviðræðurnar hafa tekið sinn tíma, en hann er þrátt fyrir það ekki á förum. 

„Við erum að ræða nýjan samning. Ég kann vel við mig hjá Manchester United og hjartað mitt er þar. Það er hörð samkeppni um stöður í liðinu, en það er gott fyrir hópinn. Það er gott að hafa góða leikmenn í kringum sig.“

„Þú verður að berjast um sætið þitt og það gerir alla hungraða. Að hafa menn eins og Mkhitaryan, Zlatan og Pogba í kringum sig er frábært og því vil ég vera áfram,“ sagði Lingard. 
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert