Áfall fyrir Manchester United

Leikmenn Manchester United fagna marki.
Leikmenn Manchester United fagna marki. AFP

Manchester United hefur misst enn einn af leikmönnum sínum í meiðsli og það verður frekar vængbrotið United-lið sem mætir WBA á Old Trafford á morgun.

Spænski miðjumaðurinn Juan Mata verður frá keppni næstu vikurnar en hann gekkst undir aðgerð vegna kviðslits í gær. Mata verður frá keppni í það minnsta næsta mánuðinn sem þýðir að hann kemur til með að missa af næstu níu leikjum sinna manna.

Fyrir á sjúkralistanum voru þeir Paul Pogba, Chris Smalling og Phil Jones og þeir Zlatan Ibrahimovic og Ander Herrera taka út leikbann í leiknum gegn WBA á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert