David Moyes hættur með Sunderland

Síðasti leikur David Moyes var gegn Chelsea í gær.
Síðasti leikur David Moyes var gegn Chelsea í gær. AFP

David Moyes sagði í dag upp störfum sem þjálfari Sunderland, eftir að hafa fallið með liðinu úr ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á nýliðinni leiktíð. Sunderland var samfleytt í tíu ár í deildinni, en undir stjórn Moyes féll liðið eftir mikla baráttu á botninum undanfarin ár. 

Moyes tók við stjórn Sunderland af Sam Allardyce, sem hætti með liðið til að taka við enska landsliðinu. Sunderland rak hins vegar lestina í deildinni með aðeins 24 stig og sex sigra. 

„Ég vona að eftirmaður minn hjálpi liðinu að komast aftur upp í úrvalsdeildina á næstu leiktíð,“ sagði Moyes í yfirlýsingu sem hann lét frá sér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert