Framtíð miðvarðarins Chris Smalling hjá Manchester United er sögð í óvissu en að því er fram kemur í breska blaðinu The Sun er möguleiki á að United láti Smalling fara í sumar.
West Ham og WBA eru meðal þeirra liða sem sögð eru áhugasöm um fá Smalling í sínar raðir en hann hefur ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliði Manchester-liðsins á þessu tímabili. Meiðsli spiluðu þar einnig inn í reikninginn en José Mourinho hefur ekki verið sáttur með frammistöðu hans.
Smalling, sem er 27 ára gamall, á tvö ár eftir af samningi sínum við Manchester United.