Handarbrotnaði í hjólatúr með fjölskyldunni

Fernando Llorente.
Fernando Llorente. AFP

Fernando Llorente, liðsfélagi Gylfa Þórs Sigurðssonar í enska úrvalsdeildarliðinu Swansea City, missir af öllum leikjunum á undirbúningstímabili liðsins, þar sem hann handarbrotnaði í hjólatúr með fjölskyldunni í sumarfríi sínu á Ítalíu.

Llorente gæti einnig misst af fyrstu leikjum tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni, sem hefst eftir sex vikur. Llorente var markahæsti leikmaður Swansea á síðustu leiktíð með 15 mörk. 

Spánverjinn þar að gangast undir aðgerð vegna meiðslanna. Í yfirlýsingu frá Swansea segir að félagið er vongott um að hann nái fyrsta deildarleik tímabilsins, en hann æfir takmarkað á undirbúningstímabilinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert