Leikmaður Chelsea fótbrotnaði í kvöld

Lucas Piazon
Lucas Piazon AFP

Lucas Piazon er á láni hjá Fulham frá Chelsea en hann fótbrotnaði í leik gegn Leeds á útivelli í ensku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld eftir viðskipti sín við Conor Shaughnessy, varnarmann Leeds. 

Hinn 23 ára gamli Piazon var á láni hjá Fulham á síðustu leiktíð og spilaði hann 33 leiki fyrir liðið. Piazon hefur verið samningsbundinn Chelsea síðan árið 2012 en hann hefur aðeins leikið einn leik fyrir liðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert