Ensku úrvalsdeildarfélögin Manchester United og Tottenham berjast um Ryan Sessegnon, 17 ára leikmann Fulham, ef marka má heimildir Sky Sports. Sessegnon hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað 26 leiki í B-deild Englands.
Leikmaðurinn var hluti af enska U19 ára landsliðinu sem varð Evrópumeistari í sumar. Takist United eða Tottenham að landa Sessegnon verður hann að öllum líkindum lánaður aftur til Fulham til loka leiktíðar.
Fulham hefur hins vegar lítinn áhuga á að selja leikmanninn og vill félagið fá meira en 25 milljónir punda fyrir hann.