Everton leitar enn að nýjum knattspyrnustjóra en David Unsworth var ráðinn tímabundið í starfið eftir að Ronald Koeman var sagt upp störfum.
Stjórnendur Everton hafa borið víurnar í Marco Silva, stjóra Watford, en forráðamenn Watford hafa hafnað beiðni Everton-manna.
Hollendingurinn Louis van Gaal, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, er í enskum fjölmiðlum í dag orðaður við starfið hjá Everton.
Van Gaal er þrautreyndur þjálfari sem hefur stýrt liðum á borð við Ajax, Barcelona og Bayern München. Hann var látinn taka poka sinn hjá United eftir tvö tímabil, tveimur dögum eftir að Manchester United fagnaði sigri í ensku bikarkeppninni.