Gylfi Þór Sigurðsson stóð sig vel í 1:0-útisigri Everton á Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Liverpool Echo gefur okkar manni 8 af 10 mögulegum í einkunnagjöf sinni fyrir leikinn og er hann hæstur allra leikmanna Everton ásamt Ashley Williams.
Hér að neðan má sjá umsögn miðilsins um frammistöðu okkar manns.
Gylfi Þór Sigurðsson - 8
Eins og venjulega var hann orkumikill og lagði mikið á sig, bæði í vörn og sókn. Hann er alltaf líklegur til að koma með mikilvægar sendingar.
Sky Sports gefur Gylfa svo 7 af 10 mögulegum og er hann á meðal hæstu leikmanna Everton.
Loks gefur Whoscored.com okkar manni 7,7 af 10 mögulegum fyrir frammistöðuna og enn á ný er hann á meðal bestu leikmanna Everton.
Eftir slaka byrjun á mótinu hefur Everton ekki tapað í síðustu fjórum leikjum sínum og unnið þrjá af þeim.