Liverpool vill fá Coutinho til baka

Philippe Coutinho
Philippe Coutinho AFP

Phil­ippe Cout­in­ho, leikmaður spænska knatt­spyrnu­fé­lags­ins Barcelona, er sagður vera á förum frá félaginu í sumar og segja fjölmiðlar á Englandi að hans gamla félag Liverpool hafi áhuga.

Coutinho hefur verið orðaður við endurkomu til Englands eftir misheppnaða dvöl á Spáni en Barcelona keypti hann í janúar 2018 fyrir 140 milljónir punda frá einmitt Liverpool. Brasilíumaðurinn hefur ekki náð sér á strik hjá spænsku meisturunum og er sagður vera kominn á sölulista félagsins.

Það eru Daily Express og Mirror sem færa fréttir af áhuga Liverpool en fyrr í vikunni var sóknarmaðurinn sagður á óskalista franska stórliðsins PSG. Þá er Chel­sea einnig sagt áhuga­samt um leik­mann­inn en Chel­sea er í fé­laga­skipta­banni og má því ekki kaupa leik­menn í næstu tveim­ur fé­laga­skipta­glugg­um.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert