Leikmenn City eru ofurmenni

Pep Guardiola.
Pep Guardiola. AFP/Adrian Dennis

„Ég dýrka leikmennina mína, þeir eru ofurmenni,“ sagði Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, eftir 1:0, sigur liðsins gegn Bournemoth í ensku úrvalsdeildinni í gær.

„Þeir eru svo góðir. Við höfum spilað á þriggja daga fresti í mörg ár.  Bournemouth hafði sjö daga til þess að undirbúa sig fyrir þennan leik.

Við krefjumst of mikið af leikmönnum okkar, ég veit að fólk segir að þeir eru að fá há laun en þetta er of þétt dagskrá.

Þetta heldur áfram og það kemur mér á óvart í hvert skipti að við erum ennþá inni í þessu. 
Þeir hafa ótrúlegan karakter og þegar þeir eru þreyttir þá gefa þeir enn meira,“ sagði Guardiola.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert