Massa hrósar mannskapnum

Felipe Massa fremstur í fylkingu í Monza í dag.
Felipe Massa fremstur í fylkingu í Monza í dag. mbl.is/afp

Felipe Massa hrósaði starfsfólki Williamsliðsins fyrir „fullkomið starf“ í ítalska kappakstrinum. Uppskar hann fyrsta pallsæti sitt með Williams.

Massa átti náðugan dag þar sem ökumenn Mercedes voru of langt á undan til að glíma við þá og ökumennirnir á eftir honum ógnuðu aldrei.

„Frábær dagur fyrir okkur, flottur kappakstur, gott start og hraðinn í bílnum mjög góður, jafnvel þót tþað dygði ekki gegn Mercedesbílunum.

Ég er alsæll með pallsætið, við höfum saknað þess hingað til og það er sérstakt að standa á verðlaunapalli hér,“ segir Massa sem keppti árum saman fyrir Ferrari áður en hann réðist til Williams fyrir árið í ár.

Liðsfélagi Massa, Valtteri Bottas, varð fjórði í mark.



Hamilton fagnar pallsæti Massa með því að hella yfir hann …
Hamilton fagnar pallsæti Massa með því að hella yfir hann kampavíni í Monza. mbl.is/afp
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert