Perez yrði ánægður á sama stað

Sergio Perez ræðir við blaðamenn í Singapúr.
Sergio Perez ræðir við blaðamenn í Singapúr. AFP

Sergio Perez kveðst vona að hann geti staðfest fyrir septemberlok hvar hann keppi á næsta ári. Og bætir því við að hann myndi með ánægju keppa áfram fyrir Force India.

Í sumar hefur verið á kreiki þrálátur orðrómur þess efnis að Perez væri á leið til Renault, en fyrir liggur einnig að Williams hefur sýnt áhuga á því að fá hann í sínar raðir.

Á blaðamannafundi í Singapúr þykir hann hins vegar hafa talað þann veg að túlka megi það sem svo að Mexíkóinn muni ekki skipta um vinnustað og vera áfram hjá Force India. Liðið hefur þegar staðfest að Nico Hülkenberg keppi þar á bæ 2017.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert