Fyrsti Benettonbíll Schumacher til sölu

Bíllinn fali sem Schumacher ók.
Bíllinn fali sem Schumacher ók.

Fyrsti keppnisbíll Michaels Schumacher hjá Benettonliðinu er til sölu. Ók hann honum fyrst í síðustu tveimur mótum ársins 1991.

Áður en Schumacher fékk bílinn í hendurnar hafði Nelson Piquet keppt á honum.

Um er að ræða Benetton með 3,5 lítra og 650 hestafla V8 Cosworth Ford vél. Talið er að bílasafnarar muni bítast um hann á uppboði Bonhams-fyrirtækisins í London 21. maí næstkomandi.

Bíll þessi verður ekki af billegri gerðinni því hann er metinn á 640 - 810 þúsund pund eða sem svarar til 90 - 115 milljóna króna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert