Puerta, leikmaður Sevilla, er látinn

Antonio Puerta var aðeins 22 ára gamall.
Antonio Puerta var aðeins 22 ára gamall. Reuters

Antonio Puerta, leikmaður spænska knattspyrnuliðsins Sevilla, lést í dag af völdum hjartáfalls, aðeins 22 ára að aldri. Puerta hneig niður í leik Sevilla og Getafe á laugardaginn og síðan aftur eftir að honum hafði verið skipt af velli, og var eftir það á gjörgæslu.

Virgen del Rocio sjúkrahúsið í Sevilla staðfesti andlát hans fyrir stundu.

Puerta fæddist 26. nóvember 1984 og er uppalinn hjá Sevilla. Hann hafði leikið með aðalliði félagsins frá 2004 og spilaði sinn fyrsta og eina A-landsleik fyrir Spán á síðasta ári.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert