Eiður hugsanlega í leikmannahópi Barcelona

Eiður Smári og Thierry Henry skiptast á orðum um leið …
Eiður Smári og Thierry Henry skiptast á orðum um leið og þeir teygja á æfingu Barcelona í dag. Heimasíða Barcelona

Eiður Smári Guðjohnsen verður hugsanlega í leikmannahópi Barcelona í fyrsta sinn á þessari leiktíð þegar Börsungar sækja Osasuna heim í 3. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar á sunnudagskvöld.

Eiður, sem heldur upp á 29 ára afmæli sitt á morgun, var mættur á æfingu hjá Barcelona í dag, þeirri fyrstu eftir landsleikjatörnina, og þar sem Samuel Eto'o er frá vegna meiðsla og Lionel Messi er tæpur vegna meiðsla er allt eins líklegt að Frank Rijkaard velji Eið í leikmannahópinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert