Pétur verður aðstoðarmaður Ólafs landsliðsþjálfara

Pétur Pétursson verður aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins.
Pétur Pétursson verður aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins. Skapti Hallgrímsson

Pétur Pétursson, fyrrum landsliðs- og atvinnumaður í knattspyrnu, verður aðstoðarmaður Ólafs Jóhannessonar, nýráðins landsliðsþjálfara karla. Ólafur staðfesti við fréttavef Morgunblaðsins rétt í þessu að Pétur hefði gefið sér nánast jákvætt svar fyrr í dag en hann biði reyndar eftir 100 prósent staðfestingu frá honum.

"Á meðan þetta er bara 99,99 prósent öruggt get ég ekki fullyrt algjörlega að Pétur verði aðstoðarmaður minn en það stefnir vissulega allt í það. Hann átti eftir að ræða málið við fjölskyldu sína þegar ég heyrði síðast í honum," sagði Ólafur Jóhannesson.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert