Eiður Smári og Hermann í liðinu sem mætir Slóvakíu

Eiður Smári Guðjohnsen er í landsliðshópnum sem mætir Slóvökum.
Eiður Smári Guðjohnsen er í landsliðshópnum sem mætir Slóvökum. mbl.is/Árni Torfason

Ólafur Jóhannesson hefur valið 20 manna leikmannahóp fyrir vináttulandsleik gegn Slóvökum sem leikinn verður ytra þann 26. mars. Meðal leikmanna sem eru í hópnum eru Eiður Smári Guðjohnsen og Hermann Hreiðarsson en þar sem um alþjóðlegan leikdag er að ræða gat Ólafur kallað til leiks þá atvinumenn sem hann kaus að fá.

Leikmannahópurinn er þannig skipaður:

Markverðir:
Kjartan Sturluson, Val
Stefán Logi Magnússon, KR

Varnarmenn:
Hermann Hreiðarsson, Portsmouth
Kristján Örn Sigurðsson, Brann
Grétar Rafn Steinsson, Bolton
Ragnar Sigurðsson, IFK Gautaborg
Atli Sveinn Þórarinsson, Val
Bjarni Ólafur Eiríksson, Val

Miðjumenn:
Stefán Gíslason, Bröndby
Emil Hallfreðsson, Reggina
Ólafur Ingi Skúlason, Helsingborg
Theódór Elmar Bjarnason, Lyn
Jónas Guðni Sævarsson, KR
Aron Einar Gunnarsson, AZ Alkmaar
Eggert Gunnþór Jónsson, Hearts
Bjarni Þór Viðarsson, Twente

Sóknarmenn:
Helgi Sigurðsson, Val
Eiður Smári Guðjohnsen, Barcelona
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Vålerenga
Veigar Páll Gunnarsson, Stabæk

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert