Arnór í fyrsta sinn í A-landsliðshópi

Arnór Smárason.
Arnór Smárason. mbl.is

Arnór Smárason, leikmaður hjá hollenska liðinu Heerenveen, verður í íslenska landsliðinu sem mætir Wales í vináttulandsleik á Laugardalsvelli á miðvikudaginn í næstu viku.

Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari tilkynnir landsliðshópinn á miðvikudaignn kemur en heimasíða Heerenveen skýrði frá þessu í dag og þar segir að þetta sé í fyrsta sinn sem Arnór sé valinn í A-landslið karla. Arnór er 19 ára gamall og hefur átt fast sæti í U21 árs landsliðinu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert