Dóra í byrjunarliðinu gegn Grikkjum

Guðrún Sóley og Sara Björk eru í byrjunarliði Íslands.
Guðrún Sóley og Sara Björk eru í byrjunarliði Íslands. mbl.is/Kristinn

Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu tilkynnti í kvöld byrjunarliðið fyrir leikinn gegn Grikkjum í Evrópukeppninni sem fram fer á Laugardalsvellinum á morgun kl. 16.30.

Ein breyting er á liðinu frá leiknum við Slóvena síðasta laugardag. Dóra Stefánsdóttir, sem missti af honum vegna meiðsla, kemur inn í staðinn fyrir Katrínu Ómarsdóttur.

Byrjunarliðið er þar með þannig skipað:

Þóra B. Helgadóttir - Ásta Árnadóttir, Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Katrín Jónsdóttir, Ólína G. Viðarsdóttir - Dóra María Lárusdóttir, Edda Garðarsdóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir, Dóra Stefánsdóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir - Margrét Lára Viðarsdóttir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert